Ég verð að segja þetta ég er svo hræddur, samt lenti ég ekki í þessu. Vinur minn á heima í húsi rétt hjá mér, og í húsinu átti heima maður en hann drukknaði í á rétthjá. Vinur minn var sofandi en vaknaði um nóttina við grát frænku sinnar (hann var að passa hana). Hann fer og tjékkar á henni þegar hann fær allt í einu rosa hroll. Hann lítur fyrir aftan sig og sér mjög stóran poll á gólfinu. Og maðurinn sem átti þarna heima dó útaf drukknun! Hann varð skíthræddur og dreif sig upp í rúm og reyndi að sofna.

Ég er hræddur því að hann á heima rétt hjá mér, þetta er spooky!