Sæl :)
Ég kem með enn eina fyrirspurnina hér! Aftur um undarlegann skugga sem virðist fylgja mér! Í byrjun desember skrifaði ég kork hér (sjá http://www.hugi.is/dulspeki/threads.php?page=view&contentId=1818787 )um veru sem ‘fylgdi’ mér heim.
Ég spáði ekkert meira í því….var farin að halda að þetta hefði bara verið ímyndun í mér eftir því sem lengra leið frá þessum atburði.
En um daginn voru ég og vinkona mín að taka myndir af okkur. Á hverri einustu mynd er óljós grá vera fyrir aftan mig,en ekkert fyrir aftan vinkonu mína! Sama hvernig við stilltum okkur uppp,saman eða í sitthvoru lagi, alltaf var þessi skuggi fyrir aftan mig! Ég fékk hnút í magann og skoðaði myndirnar vel og vandlega. Á einni myndinni sit ég og brosi framan í myndavélina. Veran u.þ.b. 30 cm stærri en ég stendur fyrir aftan mig. Hún lítur út fyrir að vera í kufli með hettu. Á þeirri mynd sést hún skýrast. Alveg eins og skugginn sem fylgdi mér í byrjun desember!
Vinkona mín sá þetta líka, svo að ég held að ég sé ekki að verða brjáluð! Eða ég vona ekki ;-) en hvað er þetta eiginlega…? ég er orðin hálfhrædd…mín helsta skýring er að þetta sé verndarandinn minn…en ég hef ekki hundsvit á dulspeki! Það væri gaman að vita hvað þið haldið!
Kv. Laticia :)