Ég vissi eiginlega ekkert hvað ég ætti að láta þetta heyta en málið er að ég ætla að leysa frá skjóðunni.
Ég er skyggn og sé mjög mjög mikið fyrir. Ég get ekki treyst neinum fyrir þessu því að þótt vinir mínir séu góðir og allt það þá eru þeir allir ósköp jarðbundnir og mundu aldrei trúa svona rugli.
Ég sagði tveimur krökkum frá tveimur sýnum sem ég sá um þá og svo rættist það skömmu seinna. Mér þætti ágætt að spjalla við einhvern sem er svona líka því mig grunar að þannig fólk sé eina fólkið sem mun einhvertíman getað skilið þetta.