Núna ætla ég að segja ykkur frá mjög svo skuggalegri lífsreynslu sem ég varð fyrir áðan! Og þetta er alveg satt,svona fyrir þá vantrúuðu!

Ég var á leiðinni heim af íþróttaæfingu og var að söngla eitthvað lag og dilla mér í leiðinni!Í alveg frábæru skapi. Mér varð litið á skuggann minn og hann var bara ósköp eðlilegur. Eftir smástund leit ég á hann aftur. Þá var hann allt í einu orðinn tvöfaldur og annar skugginn var allt öðruvísi en hinn! Það var eins og það stæði tveggja metra há manneskja í kufli,skikkju eða síðum kjól við hliðin á mér. Mér dauðbrá og leit í kringum mig. En auðvitað var þar enginn. Þessi aukaskuggi hvarf ekki fyrr en ég var komin heim og inn í hús.

Hafiði einhverja skýringu á þessu? Mér finnst þetta stórfurðulegt og vil gjarnan fá að vita hvað þetta gæti hafa verið…

Kv.Laticia