Á föstudagsnótt þá fór ég að sofa svona þrjú leytið… en vaknaði síðan aftur og þá var ég bara að hristast á fullu.. og rúmið líka sýndist mér.. ég hélt fyrst að þetta væri jarðskjálfti.. og ætlaði að setjast upp.. en svo gat ég ekki hreyft mig.. það var eins og ég væri dáin.. en ekki sálin mín.. or sum.. heh þetta hljómar kannski svolítið fáránlega allt saman !.. og síðan sofnaði ég bara aftur´.. en vaknaði eftir það alltaf alveg nákvæmlega á klukkutíma fresti ! bara glaðvaknaði akkúrat á klukkutíma fresti alveg til svona hálf ellefu (þegar ég vaknaði við hristingin var kl. svona hálf fimm)
og næsta dag var ég alveg búin að gleyma þessu.. en svo man ég það aftur.. og kíkti á textavarpið hvort það hafði verið jarðskjálfti.. og spurði fjölskylduna og vini mína í grenndinni hvort þau hefðu fundið fyrir hann.. en nei.. ekkert svoleiðis…
þá er spurningin mín.. hvað í fjandanum var að gerast þarna ?! þrjár manneskjur eru bún að segja við mig að ég sé bara orðin eitthvað geðveik vegna þess að ég er nýhætt með kærastanum mínum =/ ehe..
en jámm :) endilega þeir sem vita eitthvað um svona.. svara mér !
:*