Sæll myrkvidi.
Það er almennur miskilningur að maðurinn noti lítinn hluta heilans. Ég hef heyrt frá fólki að við notum ekki nema frá 7 - 13% heilans, sem er rangt. Hinsvegar getur vel verið að við notum ekki nema lítinn hluta í einu, en að við notum bara lítinn hluta til alls er algjörlega rangt.
Hingað til hefur enginn náð að sanna (nema nokkrir Jónar útí bæ fyrir sjálfum sér og kannski Sigga og Pétri vinum sínum) yfirnáttúrulega hæfileika. Ef einhver telur sig reiðubúin til að gera það undir eftirliti, þá mæli ég með randi.org.
Mörg atvik þar sem fólk telur sig hafa lent í yfirnáttúrulegum atburðum er hægt að útskýra með hjálp vísinda. Helstu kenningar um hvers vegna fólki dreymir stundum um óliðna atburði er að maður taki ómeðvitað við allskonar vísbendingum úr umhverfinu sem undirmeðvitundin kemur frá sér með draumum.
þegar fólk eða dýr finna á sér að náttúruhamfarir eru í nánd geta verið vegna veikra hljóðbylgja eða lítils titrings sem er of lítill til að við áttum okkur almennilega á að við höfum fundið hann en finnum samt á okkur að eitthvað hafi gerst. Kona ein vaknaði einhverntíman og fann á sér að eitthvað væri að gerast, hún fór út og stuttu seinna kom jarðskjálfti. Vísindamenn fóru að rannsaka þetta og þeir fundu út að svona sterkir jarðskjálftar gefa frá sér (að mig minnir) veikar hljóðbylgjur, sem höfðu þó verið nægilega sterkar til að vekja konuna.
Skyggni hæfileiki er eitthvað sem ekki hefur verið sannað enn.
Randi, ég, og fjöldinn allur af fólki bíður ennþá eftir einhverjum sem tilbúin er að sanna þetta fyrir okkur.
Hinsvegar eru margir þeirra sem kalla sig miðla í raun bara að lesa líkamstjáningu fólks. Það er ótrúlegt hversu nákvæmir sumir eru og var þáttur á stöð2 fyrir skömmu með manni sem sagði að hann væri ekki skyggn, eða miðill heldur einungis að lesa líkamstjáningu fólksins og það var hreint út sagt ótrúlegt hversu mikið hann gat lesið úr þeim. Hann var mun betri en Þórhallur.
Ég er ekki að kalla alla miðla lygara eða svikara, þar sem sumir trúa eflaust að þeir hafi einhverja hæfileika, þó svo að það afsannist strax og þeir eru komnir undir eftirlit.
Ég mæli með eftirfarandi síðu ef þú vilt kynna þér þetta betur,
þarna er mikið af þessum yfirnáttúrulegu hlutum útskýrðir. Svo sem árur, draugar, skyggni, geimverur og allur pakkinn bara.
http://www.skepdic.com/contents.htmlTakk fyrir og vertu sæl/l.
Kv.
Incubi<br><br>__________
Bless.