Að dreyma jarðarförina sína er minnir mig fyrir langlífi. Allt sem viðkemur dauða manns sjálfs eða annara er fyrir langlífi viðkomandi. Ef þig dreymir einhvern sem er látinn að þá ber að hlusta á orð hans því oft er einhver boðskapur sem er verið að færa þér og oft gott að fylgja ráðum framliðinna í draumi, samt innan skynsamlegra marka ef að það er bara eitthvað rugl sem er verið að segja þér. Ef þig dreymir að þú komir að leiði einhvers sem er látinn að þá merkir það að þú átt eftir að tengjast viðkomandi meira á einhvern hátt, ekki verið að meina að þú sért að fara að deyja.
Þó ber að athuga hvað gerðist í drauminum, umhverfi, áberandi litir eða eitthvað sem bar að hefur oft úrslitakosti í draumum og mæli ég með því að þú kaupir þér draumaráðningabók, ég og mamma eigum þrjár og eru allar góðar á sinn hátt.