þannig er mál með vexti ég er alltaf að dreyma bróður minn sem dó fyrir 4 árum en draumurinn er aldrei eins einu sinni var ég stödd á tónleikum með honum (hann var í hjómsveit) og var alltaf að reina að kalla á hann en hann heirði aldrei eða hlustaði ekki (hann var samt dáinn í draumnum og ég vissi það alveg og hann líka.Svo í nótt dreimdi mig að ég var bara heima svo kom mamma og bróðir minn alltíeinu inn með voða látum og mamma sagði mér ekkert smá glöð að hann væri komin í heimsókn en mindi þurfa að fara aftur en það skrítna var að ég gat séð hann e n hann ekki mig. ég hef oft dreimt að hann sé komin aftur en samt veit ég alltaf að hann þarf að fara aftur. það er rosalega erfitt að útskýra þetta ég vona samt að þetta sé nóg til að einhver geti hjálpað mér að potna eitthvað í þessu:)