Ég hef talið mig svona frekar jarðbundna manneskju, en trúi samt sterkt á Guð en hef alltaf farið í baklás þegar fólk talar um framliðna og skyggnt fólk og svoleiðis.
En fyrir svona 9-10 mánuðum þegar ég var ennþá í dópneyslu, gerðist soldið sem ég ég ennþá ekki skil.
Ég ég var búin að gúffa í mig nokkrum töflum af lyfi sem heitir Nobligan sem ég fékk hjá lækni til að geta sofið. Þetta er mjög slævandi lyf og ég ætlaði ekki að geta haldið augunum opnum. Ég fékk 1 100 mg contalgin töflu, sem er morfín hja vini mínum og ég mann að hann sagði mér að taka þetta ekki allt í einu. En ég var svo kærulaus og rugluð af svefnlyfinu að ég sprautaði þessu öllu í mig eftir að hann fór og ég man að ég átti í miklum erfiðleikum með það því augun í mér ranghvolfdust af þreytu og ég átti erfitt með að sjá skýrt.
Svo man ég bara ekkért fyrr en ég var allt í einu stödd inní eldhúsi og það var fullt af einhverju fólki inni hjá mér og tíminn einhvern vegin bara flaug og allt var einhvern vegin í móðu, en alltaf var þetta fólk þarna. Svo rankaði ég við mér á gólfinu á nákvæmlega sama stað og ég var þegar ég sprautaði mig og lognaðist útaf. En þegar ég reis upp hélt ég áfram að sjá þetta fólk í smá stund.
Þarna um morguninn hringdi í mig kona sem ég kannast við úr AA samtökunum og hún spurði hvort hún mætti ekki aðeins líta við. Þegar hún kom sagðist hún hafa dreymt mig svo sterkt og hún var með svo rosalegar áhyggjur af mér. Hún sagðist vilja hjálpa mér og fékk 2 aðra með sér í lið sem fundu lyf og sprautur í íbúðinni sem þau gerðu upptæk og komu mér síðan á AA-fund.
Getur verið að ég hafi einhvernvegin dáið þarna á gólfinu í smástund en komið svo til baka eða var þetta bara einhver tremmi??
Ég held að það þurfi samt yfirleytt 120 mg af contalgini til að deyja fyrir óvana manneskju, en svo er annað að ég var náttúrulega undir miklum áhrifum af mjög slævandi lyfi þegar ég fékk mér þaetta og það gæti verið banvænt.
Ég man þetta samt allt svo óljóst og ég man ekki hvort ég hafi séð sjálfa mig liggja á gólfinu eða ekki þarna um nóttina.
Hefur einhver hér hugsanlega skýringu á þessum atburði??
Einhver sem er ekki drauga-bullukollur?
kv, nafnleynd.