Jæja ég lenti í þessu fyrir svona ári og finnst þetta skrítið.
Ég vaknaði bara á venjulegum laugardagsmorgni við að mamma og pabbi voru að kalla á mig og segja mér að koma upp.
Ég klæddi mig og labbaði upp(húsið er á 2 hæðum). En þegar ég var komin upp hálfann stigann hrasaði ég og datt niður nokkrar tröppur.
Svona til að lengja þetta ekkert þá var það ógeðslega sárt, ég fékk eitt sár og þrjá marbletti. En ég lokaði augunum og mér leið eins og ég hefði aldrei dottið. Mér leið eins og ég væri að labba ennþá upp og kæmi upp í eldhús og þar sætu mamma og pabbi.
Svo opnaði ég augun aftur við að ég fann svo rosalega til. Ég labbaði upp stigann og inni í eldhúsinu sátu mamma og pabbi í alveg sömu sætunum og nákvæmlega eins og voru bara alveg nákvæmlega eins og þegar mér leið eins og ég færi upp.
Svo var annað tilfelli. Ég var að hjóla hjá blokk en datt. Það var ógeðslega vont, ég lenti á hausnum og höggið var nógu mikið til að það kæmu sprungur í hjálminn. Ég lág bara allaveganaþarna og var ógeðslega illt en mér leið eins og ég stæði upp og gengi fyrir hornið á blokkinni. Þar var vinur minn og hann spurði mig hvort að ég gæti leikið. Svo opnaði ég augun og lág ennþá þarna á jörðinni og meiddi mig. Ég stóð upp og labbaði fyrir hornið á blokkinni og þarna var þessi sami vinur minn og spurði hvort ég gæti leikið.
Furðulegt. Hvað finnst ykkur?