Ekkert smá ógnvekjandi... =o(
Sko það hefur verið að koma fyrir mig undanfarið að mer gengur illa að sofna. Ég er ekki sofandi en samt sem áður er ég ekki vakandi heldur einhvern staðar á milli svefns og vöku og þá kemur þetta yfir mig. Ég get ekki talað, ekki hreyft legg né lið. Ég sé allt sem gerist í kringum mig en samt er ég svona lauslega sofandi. Þetta er þriðja eða fjórða nóttin sem þetta gerist en bara í þetta skiptið varð þetta enn óhugnalegra! Ég sáeinhvern veginn eins og einhver væri að nálgast mig á ógnar hraða en ég sá samt engan þarna heldur sá ég bara hvernig umhverfið hreyfðist…. Svo byrja ég að hristast svona innan í mér en samt þá hristist ég í rauninni ekki. ÉG sé bara fyrir mér Faðirvorið og ver mér það í huganum og þá hættir þetta en stuttu síoðar byrjar þetta aftur! Þetta hræðir mig verulega og mér líður verulega furðulega. Ég kann ekki alveg að utskýra tilfinninguna sem ég fæ á meðan á þessu stendur…. En ég er staðraðin í að fá að vita hvað þetta er….