sko…ég ætla að segja ykkur frá hlut sem kom fyrir mig, réttast sagt, er að koma fyrir mig..
Það byrjaði allt fyrir svona 1-2 vikum þegar mig dreymdi draum, um morguninn mundi ég pínulítið úr honum, en gleymdi svo því sem mig hafði dreymt jafnóðum. Svo eitthverjum dögum seinna fór ég að keppa í fótbolta uppí Reykjaneshöll (Keflvík) og ég fór inná og í seinni hálfleik þá fór ég allt í einu að muna eitthverja lykt úr draumnum og eitthvað sem gerðist í honum, þá leið mér eins og það væri að líða yfir mig, ég varð máttlaus í fótunum og ég bað um að fá að fara útaf. Seinna þá fattaði ég að þegar ég komst í þetta leiðsluástand þá mundi ég ekkert hvað gerðist á meðan, það eina sem ég veit er að stelpurnar skoruðu mark. Nokkrum dögum eftir það fór ég inn í íþróttahús, bara í íþróttum í skólanum, og þá mundi ég allt í einu að ég hafði verið með eitthverjum inni í íþróttahúsinu að gera eitthvað og þá fannst mér eins og það væri að fara að líða yfir mig, svona ég varð máttlaus í fótunum og mundi eki hvað gerðist í kringum mig. Þetta hefur gerst oftar, í svona tvö skipti í viðbót og í seinna skiptið fannst mér eins og ég þyrfti að æla og ég fékk smá ælubragð í munninn.
Svo í dag þá gerðist það, við fórum í fótbolta í skólanum og mitt lið spilaði 2 leiki og svo settumst við niður, þá fór ég að muna glefsur úr draumnum og ég komst í þetta máttlaus-í-fótum-líða-yfir ástand og mér fannst eins og ég þyrfti að æla og svo fékk ég ælu upp í munninn, hljóp inná klósett og nokkrar vinkonur mínar eltu mig. Síðan var allt í lagi með mig ég ég er ekki veik eða neitt þess háttar.
Ef þið vitið hvað er að gerast með mig, viljið þá segja mér það, ég er hrædd við þetta en samt langar mig að muna allann drauminn og allt sem gerðist í honum.
Engin skítköst takk :)