Ég er ekki komin mjög langt í þessu, hef ekki beint farið að hitta astral verur, er bara enn í því að kynnast þessu og hef ekki farið lengra en um húsið mitt. Það verður allt svolítið óskýrara en venjulega, og hreyfingarnar fylgja ekki lögmálum veruleikans, málið er að það er hugurinn sem hreyfir mann og þessvegna þarf maður að passa sig að hugsa ekki “mig langar til kína”.
Best er að byrja með hugleiðslu þar sem þú ert að gera þér grein fyrir astrallíkamanum og kynnast honum. Þegar þú gerir þér grein fyrir hvernig hann er, er gott að gera æfinguna með að sprauta út smá astralefni útúr sólarplexusinum og móta mannsmynd þína úr því. Allan tímann er strengur sem tengir þig við astral líkamann og þegar hann er orðinn stöðugur færirðu vitundina frá efnislíkamanum eftir strengnum í astrallíkamann. Þá geturðu rölt um og skoðað heiminn. Strengurinn er alltaf til staðar og ef þú vilt fara til baka fyrlgirðu honum til baka eða að þú getur hugsað um fæturnar á þér. Það er jarðtenging sem kemur manni snögglega aftur í líkamann.
www.blog.central.is/runin