Alltaf á páskanótt dreymir mig sömu martröðina. Ég er í risastóru herbergi sem að snýst í hringi og ef að ég reyni að labba þá byrjar herbergið að snúast í hina áttina. Svo næ ég loksinns að stíga 2 skref áfram og ég dett niður í holu og þá er allt misstórt og er altlaf að breyta um stærð. Þetta eru einhverskona stórar kúlur sem að stækka og minnka og snúast í hringi með hinu herberginu og svo vakna ég alltaf þegar ég er umkrínd milljón svona kúlna og er að labba einhvers konar stíg sem að er mjög mjór og ég dett niður og vakna!
Það er mjög erfitt að útskýra þennan draum en ég fór að spá núna þegar mér leiddist mest, mig hefur alltaf dreymt þetta á páska nótt!
Er það ekki pínu furðulegt?
Vona að ég fái góð svör við þessari grein en engin skítköst.
kv. Sóley<br><br>__________________________________________________
þetta er bara mitt álit… leyfðu því að skína!
Svona í 1000000 sinn –> ég er stelpa!
HrannarM ég bíð enn eftir The story greinunum þínum :´( ég sakna þeirra :(