Mig dreymdi að ég væri inni í stóra húsinu sem amma og afi misstu fyrir nokkrum árum vegna gjaldþrots. Ég labbaði útúr húsinu og sá að einhver lá slasaður við bílinn og ég sá ekki andlitið strax, bara handlegg fætur og blóð við hliðina á bílnum. ÞEtta var amma mín!!! Svo þegar ég kem að tröppunum fyrir framan útidyrnar, liggur afi þar blóðugur í framan. Ég hugsa mig um hvort ég ætti að hringja á leigubíl eða ekki, af því að ég sé þau bæði standa veiklulega upp og koma inn. Þetta var ógeðsleg martröð!!!!!!!

Nóttina áður dreymir mig gula skrautlega slöngu…en hún er svo skrýtin þegar hún hreyfir sig…þegar hún fellur saman,styttist hún og fitnar eins og hún breytist í litla ófreskju! Ég sé hana fara yfir götu þar sem ég er á leið í skólann og 2 bekkjarsystur eru með mér. Allt í einu mætum við ketti kærasta míns. Síamskötturinn hans hafði þá týnst og leitaði mig uppi. Þegar við komum að skólanum er læst hlið sem ég geng að og bakvið það kemur pardusdýr sem öskrar á mig. Ég forða mér til hinna og inn í skólann. ENDIR