Hæhæ, ég var að spá hvort einhver gæti hjálpað mér með drauma.
Þannig er að ég á pabba sem er að verða 78 ára og hann ber það mjög vel og er hress miðað við aðstæður.
Málið er að undanfarnar nætur hefur mig dreymt hann við ýmis tækifæri en málið er að ég er alltaf að hjálpa honum í draumunum afþví að honum líður svo illa eða er illt einhversstaðar.
Mér líður alltaf mjög illa þegar ég vakna.
Hvað skildi þetta merkja?<BR