Mig hefur nokkrum sinnum á ári dreymt þennan!:
Að ég sé annaðhvort föst með munninn opinn (galopinn, eða hálfopinn) eins og kjálkinn hafi farið úr lið og tilhugsunin í draumnum er hræðileg um að þegar mér loksins tekst að loka honum með handafli þá smassi það í mér allar tennur og ég finni svona brotabragð…ryk/duftbragð af brotnum tönnunum. Mig hryllir svo við þessu bæði í vöku og draumi. Ég er bara pikkföst með munninn galopinn eða hálfopinn. Þetta er ógeðslegt. Finn svona einhvernveginn öskubragð sem kemur úr kjálkanum!!! uuuugh! svo dreymdi mig þetta þarsíðustu nótt en þá dreymdi minn að ég væri að segja kærasta mínum frá þessu á meðan þetta var að gerast og hann hefði haft mikla samúð með mér. Getur einhver ráðið þetta???? Hefur einhvern dreymt sama viðbjóðsdrauminn oft á ári????