Mig dreymdi að ég ætti heima í einhverri blokkaríbúð sem gömul bekkjasystir bjó í. Ég var komin með lítinn hund heim en mamma og pabbi voru ekki komin heim. Hundurinn fer að míga á gólfið og rétt því því koma mamma og pabbi. Þau sjá ekki hundinn og ég reyni að fara leynt í að þurrka upp hlandið, en þá sér mamma hundinn og ég segi að ég hafi keypt hann í dag. Þau verða ekki ánægð á svip en segja samt ekkert.