Dreymdi að ég væri að labba úr vinnu(vinn í verslun) og krakki sem veit að ég vinn þar, finnst ég voða merkileg og segir: Váá, áttu lykil að stóru búðinni? Ég læt krakkann fara í taugarnar á mér og ýti á andlitið á krakkanum með lófanum á mér og segi: Nei stjórinn hefur lykilinn. Tveir unglingar sjá hvað ég geri með hendinni segja um mig: Hún er örugglega frekur þjóðverji þessi!!! (en ég er ekki þjóðverji!)
svo allt í einu er ég að labba inn í búðinni og hitti gamla skólasystur úr grunnskóla, en ég heilsa henni ekki og hún labbar móðguð inn í búðina og talar eitthvað við barnið sitt: Svona, við skulum koma í búðina. Man að ég brosti bara og hún líka en við sögðum ekkert.