fyrrverandi
Mig dreymdi að tvær stelpur bönkuðu uppá hjá mér og kærasta mínum. Hann fer til dyra og byrjar að tala við þær lágt og í trúnaði. Ég kem og held utan um hann til að sýna þeim hver sé með honum núna, því þær höfðu áður verið með honum(ekki samtímis). Ég held utan um hann og segi: Jæja, hvað segiði gott. Allt gott segja þær og kærastinn minn er vandræðalegur þegar ein byrjar að gráta. Hann kveður þær og fer í rúmið. Hann er í fýlu út í mig. (í draumnum).