Ég hef oft “séð” eða allavega eitthvað þannig… Það er spurning því ég er mjög myrkfælin og þetta er spurning hvort ég “sé” eða hvort þetta er allt ímyndun! Ég hef séð systur mína sem er dáin og ég hef séð gamla konu sitja í stól inn í stofu, ég hef líka séð nunnu standa með kross í höndunum… Síðan er ég alltaf að finna og heyra, ég get eiginlega aldrei verið ein í myrkri því annars gæti bara liðið yfir mig úr hræðslu eru fleiri svona en bara ég? Endilega segið mér frá ykkar reynslu…