Þetta var eins og ég væri að horfa á bíómynd en samt sveif ég um til að fylgjast með atburðum. Ég sveif yfir fullt af grasflötum, stórum og miklum og þeir voru troðfullir af svona lágum legsteinum(liggjandi). Svo var ég komin í hús þar sem bjó eitt par. Strákurinn var búinn að vera góður við kærustu sína og hún var að plana framtíð þeirra, en þennan dag var hann orðinn grimmur við hana.(hann var semsagt morðingi án þess að hún áttaði sig.)
Ég fór að svölunum úti og þar var dáin stelpa sem átti eftir að vera jarðsett!!! hún var blá í framan, með lokuð augun og með tunguna aðeins útúr sér…bláa tungu! jakk!