Mig dreymdi eitthvað viðtal við Friends…en þarna voru bara Monica og Rachel. Ég var að taka viðtalið og þær bjuggu saman(í alvöru en ekki í þættinum). Þá segir Monica: Já, ég fór frá Alan(hún sagði Alan þótt hún meinti Chandler!!!!). Þær voru að laga til í íbúðinni á meðan þær töluðu!

Svo allt í einu tekur annar draumur við þar sem ég er að spyrja lauslátan vin kærasta míns hvernig nýju kærustu hans gekk í inntökuprófi…þá segir hann að hún hafi komist inn, en hann sé hættur með henni. (skiptir um eins og nærföt!) Þá tekur annar draumur við!

Kærastinn minn fór til útlanda í dag og mig dreymir að það sé partý hjá okkur um morguninn áður en hann leggur af stað og ég sé ennþá sofandi. Fólkið kemur inn í rúm til mín og fer að spjalla við mig ofl. eins og ekkert sé. Þarna er líka einhver kærasta vinar hans(sem skiptir oft um), sem var með honum mjög lengi fyrir nokkrum árum(metið hans í sambandi, en hún hélt framhjá honum meðan hann var í útlöndum og síðan hefur hann verið hræddur við að binda sig). Þarna var hún við rúmið hjá mér(partýið var komið inn í herbergi)og hún var á háhest á einhverjum strák (sáum hana nýlega í bænum… ekki í draumi heldur í alvöru á Evróvisionkvöldinu, þar sem hún kom framhjá okkur ía háhesti á strák…ég þekkti hana aldrei, enda ekki nærri byrjuð með mínum þá). Draumar á enda!