Hæ mér finnst mjög gaman að labba ,sérstaklega þegar ég finn fyrir vellíðan og það er gott veður úti og rólegt en samt mikið af allskonar fólki í bænum.
Þá finnst mér gaman að hitta þá sem ég þekki og rabba við þá um daginn og veginn.
Hefði gaman af því að allir væru eins og ég varðandi það,en auðvitað má fólk alveg vera í fýlu líka en mér finnst hundleiðinlegt að vera í stanslausri fýlu út í heiminn.
Heimurinn er skemmtilegur staður á margan mismunadi hátt og getur auðvitað verið ruddi og grimmur líka.
En það er bara sú upplifun að trúa því sem ég lifi sem ég kann að meta og er auðvitað með það á tilfinningunni að margir sætta sig alveg við það.
En hafið það bara gott og Guð kveðji ykkur,eða ekki.=)