Ég og tvær vinkonur mínar fórum í andaglas ekki fyrir svo löngu síðan, í janúar. Það var frekar óhugnalegt! Það kom stelpudraugur sem hafði verið hengd af því að mamma hennar var grunuð um galdra, hún vissi nafnið mitt og vinkvenna minna. Svo allt í einu sagði hún “hjálp”.. Okkur brá náttúrulega pínu en spurðum við hvað þyrfti hún hjálp og hún sagði að “hann” væri að koma, við alveg bara shit, alveg skíthræddar. Spurðum hvernig við gætum hjálpað henni og hún sagði “Bæn” og við vorum í vafa um þetta en svo fór glasið að fara í hringi, og við vorum ennþá með puttann á, eins og það væri einhver að reyna að sleppa út, þannig við héldum því föstu og fórum með Faðir Vorið og þá hætti þetta. Hún sagði þá að hann væri farinn og að hliðið væri opið. Það var svolítið “creepy..” ..Að hliðið væri opið.. Hún sagðist vera bakvið mig í herberginu, við sátum á gólfinu og það var rúm fyrir aftan mig, hún sagðist vera að rölta um á jörðinni og við litum tilbaka og þá var hornið á rúmteppinu búið að lyftast smá upp. Við urðum drulluhræddar en hún sagði takk og við settum glasið yfir kertið og hlupum út alveg skíthræddar. Svo seinna um kvöldið fórum við aftur í andaglas, þar aftur á móti kom karl og hann var vondur. Hann sagðist ætla að drepa okkur og sagði að við myndum deyja, ég og önnur vinkona mín myndum verða myrtar en hin vinkona mín lenda í slysi. Við þorðum ekkert að vera að þessu lengur þannig að við hættum þessu og settum glasið yfir kertið. Svo fórum við fram og inn í annað herbergi og heyrðum skell inni í herberginu hennar og við hlupum inn og þá var búið að hrinda pottablómi á gólfið! Það var ekki minnsti möguleiki að þetta hefði dottið úr hillunni og beint á gólfið af því að það var borð sem að þetta hefði dottið þá á undan en þetta fór beint á gólfið. Og við hefðum séð þann sem hefði farið inn í herbergið og gert þetta, það var enginn heima nema við og þannig það er alveg víst að þetta var ekki gert af mannavöldum.. Eða lifandi völdum. Ég mæli nú ekki með andaglasi.. Þetta er ekkert sniðugt.. =/