fluga enn einu sinni
Ég var í tjaldi og sá flugu við rennilásinn á gólfi tjaldsins. Ég sá að þetta var eitthvað spúkí fluga og varð hrædd. Af því að ég fór að forðast hana byrjaði hún að fljúga í áttina til mín og skreið allsstaðar á mér þannig að ég fann fyrir svona ógeðslegum verkjakláða…eða svona öflugum kláða því flugan var feit og stór og labbaði hægt á mér og stakk mig stundum. Það festist oddur úr henni á puttanum og ég reyndi að ná honum úr á meðan hún stakk mig annarsstaðar.