talandi kisa
Mig dreymdi að ég sá mjög hægfara feita kisu læðast meðfram lágum trjám. Ég sagði:Æii, hvað þú ert gamall köttur. Þá segir kötturinn: Jáá, ég er frekar gamall, ég er svona tveggja til þriggja ára eitthvað svoleiðis.(sem er ekki gamalt). Ég held á kettinum og þetta eru blokkirnar í seljahverfinu í Breiðholtinu…eða kannski fellahverfinu, en ég bý ekki þar. Svo koma krakkar með hund og ég segi við kisu: Hafðu engar áhyggjur, þessi hundur er góður. Kisa segist vera hrædd og hleypur í burtu og hundurinn geltir á eftir henni og eltir. Kisa nær að klóra í hundinn. Svo hverfa allir og ég labba yfir alla garða blokkanna…eða það er frekar einsog ég svífi yfir garðana! Þá er búið að rækta mismikið af grænmeti í beðunum í hverjum garði.