Það er ein ´vinkona´ sem vill ekkert lengur með mig og vinkonu mína hafa og ég veit að hún hatar mig fyrir að hafa ´stolið´þessari vinkonu frá sér, sem ég gerði ekki!!! En þetta dreymdi mig:

Sko, hún átti í alvöru afmæli í gær og mig dreymir að ég sendi henni kæra afmæliskveðju og komi að heimsækja hana en hún er mjööög alvörugefin og ólétt af sínu 4ða barni(sem er ekki satt, því hún á 3 börn). Ég heimsæki hana og hún hleypir mér inn en svarar engu sem ég spyr hana og hún vill ekkert með mig hafa.