Mig dreymdi fyrirsjáanlegasta og klisjukenndasta draum sem mig hefur nokkrum sinni dreymt…Fyrst fór ég til Íraks og hitti Saddam Hussein, mér fannst hann bara mjög vinalegur og fínn í draumnum og við áttum ágætis samskipti, (hei, þetta var draumur!)…svo þegar ég var komin heim var ég komin með Asíuveikina, lungnabólguna þið vitið, en hún var víst bara lítil svört ló sem starfsmaður hjá flugvellinum dustaði af mér þegar ég kom heim til Íslands, svo það var allt í lagi.
Svo hvað merkir þessi draumur? Mig hefur bara aldrei dreymt jafn ófrumlegan draum, þess vegna fannst mér hann áhugaverður.
Er ég að fara að verða vellrík,
mun ég bráðum giftast,
er hætta í loftinu…
eiga draumráðningar ekki að vera svo dramantískar….
eða hmmmmmmmmmmmmm, var ég bara búin að fylgjast aðeins og vel með fréttum? Hahahahaha :)
Ég er opin fyrir öllu… Svo, hvað segja spekingarnir? :)
Hvað táknar svona draumur sem er eins og upp úr fréttunum bara?
Hvað er þetta með að Asíuflensan var svart ló sem var hægt að dusta af mér?