Það er svo skrýtið… stundum fæ ég alveg rosalega á tilfinninguna að eitthvað ákveðið gerist… og þá gerist það!

Tökum sem dæmi: Ég fór í labbitúr með hundinn minn og vinkonu minni og hennar hundi, og á leiðinni heim þá fæ ég þessa rosalegu tilfinningu um að það sé eitthvað hinum meginn við hólinn sem við förum yfir sem fær hvuttana til að fara, og viti menn, þar var annar hundur og allir voffarnir hlaupa í burtu og við vorum nokkurn tíma að finna þá!

Þetta gerist mjög oft, og það er alltaf eins og ég viti nákvæmlega það sem gerist, rosalega undarlegt… stundum er þetta eitthvað sem er alveg út í hróa en samt gerist það !

soldið spúkí… þetta er óþægilega þægileg tilfinning… :/<br><br>
=================================================


Lífið er eins og dauðinn… bara styttra…