Antonio Banderas í rúminu mínu!!!
Mig dreymdi að ég hefði vaknað við hliðina á Antonio Banderas í rúminu mínu og ég hugsaði:“Hvar ér kærastinn minn???”. Antonio reynir eitthvað við mig en ég segi honum að ég sé í sambandi og kærastinn minn komi úr vinnuferðalagi á hverri stundu. Þá segir Antonio á íslensku(hann er brosandi þegar hann segir þetta, en horfir kynferðislega á mig:“Núú, ertu í sambandi?” Ég bið hann að fara og segi að ég gæti ekki gert kærastanum mínum svona lagað, að vera með annan í rúminu!!!. Hann fer úr herberginu, en fer hann heim??? Neeei, hann fer að útbúa morgunverð fyrir fjölskylduna mína!!!! Mat af hans þjóðerni! Þegar ég kem inn í eldhús(þetta er eitthvað allt, allt annað hús), þá lítur mamma á mig áskökunaraugum en segir ekki neitt. Alltaf er ég áhyggjufull og fylgist með útihurðinni, vonandi að kærasti minn komi ekki svo ég verði ekki vandræðaleg og þurfi að útskýra eitthvað fáránlegt! Ég vakna einsog þetta hafi gerst(mjög raunverulegt þó, skrýtið). Sem beutr fer hafði þetta ekki gerst!!!!