skýrslan
Mig dreymdi að ég færi til sjóntækjafræðingsins á Laugaveginum og vildi panta daglinsur. Hann segir þá eitthvað við mig sem ég man ekkert. Hann situr þarna í mjööög skærri peysu(sérstök týpa) og konan hans er líka bakvið afgreiðsluborðið, bara standandi. Svo lít ég á skýrslu sem liggur á borðinu og þar eru nöfn með lýsingum á persónuleika hvers viðskiptavinar sekm kemur til þeirra. Við mitt nafn var: Góð, skemmtileg, frábær. Svo var búið að teikna hring utan um nafnið mitt!!!!!!! Stórskrýtið!!!!!!!