Kærasta minn dreymdi að ég væri ólétt og að það hafi bara verið venjulegt…engin hissa viðbrögð eða neitt og mig dreymdi sömu nótt að ég og hann keyrðum framhjá bílaverkstæði og uppá þaki verkstæðisins voru nokkrir strákar…svona 8 ára að kasta bílahlutum í bílinn okkar!!! Þeir köstuðu t.d. húddi af Benz bíl sem smassaðist einsog gler og þeir fleygðu miklu fleiri pörtum og fóru illa með bílinn. Ég bað kærasta minn að hringja í lögguna en þá hringdi hann bara í vin sinn og fór að spjalla, og á meðan hann spjallaði þá pissaði hann utan í vegg. Á meðan hann var að pissa gaf ég í skyn að ég þurfti líka að pissa og hann færði sig meðan hann spjallaði og ég pissaði í sama hornið. Svo hringir hann ekkert í lögguna þótt litlu strákarnir væru allir farnir að ráðast á mig(ég var allt í einu komin uppá þak til þeirra). Þeir lömdu nokkrum sinnum í hausinn á mér með grjóti og allskonar drasli. Ég reyndi að verja mig með 2 stórum steinum!!! Man hvað það var ógeðslega vont að láta lemja sig í hausinn með grjóti og fann MIKIÐ til í draumnum! Svo bara THE END!!!!!!!! Einn af þessum litlu strákum var sonur vinkonu frænku minnar.