Ég man ekkert af draumnum nema það að þessi vinur minn ræðst á mig svo fullur ofsa og reiði. Hann sem er örugglega rólegasti og vingjarnlegasti strákur sem ég þekki, og ég var svo hræddur að ég tók skammbyssu og ég skaut hann fjórum sinnum. í fyrstu þrem skotunum, sem öll voru í ennið þá varla tók hann við sér, en í 4 skotinu dó hann.
Fyrst var leið mér frekar illa… svo fór ég að gráta, og grét og grét. Það var samt einhver að hugga mig sem ég man ekki hver var.

Þegar ég vaknaði um morguninn þá var ennþá svona yfir mig, og mér fannst ég hafa drepið hann, eins og að þetta hefði gerst í alvöru. Mér leið ekki vel…

Getur einhver sagt mér hvað þetta þýðir?

Kv.
Sindr1