Ég fór á myndina Ring og fékk martröð útfrá henni(er ekki vön að fá martraðir úr bíómyndum) og ég vaknaði upp með eitthvað skrýtið hljóð uppúr mér um nóttina(hallærishljóð) svo unnustinn vaknaði og sagði:Hvað! Ég er fegin að hann man ekki eftir þessu því hljóðið í mér var svo asnalegt hahaha…svona einsog ég væri að kúgast því þetta dreymdi mig:

Ég sá konu með risa bjöllu(pöddu) uppí munninum og var að reyna að gleypa hana. Paddan hélt munninum á henni opnum með því að snúa lóðrétt í munninum, þvílíkt stór og feit!!!!! svo var einhver kona að ásaka aðra konu fyrir morð og sú sem var ásökuð fölnaði svo mikið af skelfingu í framan að hún breyttist í ljósblátt lík og bara allt í einu dauð!!!! Þýðir þetta nokkuð eftir að maður horfir á bíómyndir? Ég vaknaði við að kúgast útaf bjöllunni og það heyrðist svona aaaahgggrr hljóð í mér.

HÖÖÖRMUUUNG hahahaha :D