hmmm
mig dreymdi að ég mætti ævagömlum vinum frá þarsíðasta sambandi (en þá vann minn fyrr-fyrrverandi með stráknum) sem ég var í. Þau voru að labba yfir götu á Laugaveginum og voru með 2 börn!!!! Stærra barnið var í barnavagni, ljóshærð stelpa með mjög sítt hár og tvær fléttur og ég man að ég kom við flétturnar, sem voru eitthvað svo gervilegar, eins og þær væru á dúkku. Konan(gömul vinkona) hélt á pínulitla barninu(sem ætti frekar að vera í vagninum) og svo var draumurinn bara á enda og ég man ekkert hvað/eða hvort við töluðum eitthvað saman…ég var bara að skoða börnin.