Ég og bróðir minn höfum bæði þá eiginleika að okkur finnst stundum eins og eitthvað springi í hausnum á okkur og síðan verður okkur svaka heitt á því svæði en þetta kemur bara fyrir okkur og engann annan og stundum finnst mér eins og hjartað í mér taki nokkur aukaslög bara upp úr þurru en það er ekki það sem ég ætlaði að tala um heldur það að litli bróðir minn hefur oft séð tvo menn einn alveg svartklæddan en hinn alveg hvítklæddan og hann hefur aldrei séð framan í þá því hann sér þá EIGINLEGA alltaf útundan sér og ég veit ekkert hvað þetta er en mér finnst þetta samt svo skrítið því hann er 7 ára og hugsið ykkur hvað það er hræðilegt.
Oftar en einu sinni vorum við eitthvað að leika okkur saman en allt í einu horfir hann svo skringilega á einn veggin eins og ég veit ekki hvað og síðan náði ég gétt sbo að veiða þetta upp úr honum og þetta hefur verið í gangi mjög lengi greinilega.
Það gerast líka mjög skrítnir hlutir í kringum okkur t.d.Við áttum heima í Svíþjóð og mamma týndi þar eyrnalokk og síðan mörgum árum seinna fann ég hann bara í skartgripaskríninu hennar og við vorum á þeim tíma búin að flytja 4-5 sinnum.