allt önnur föt
Mig dreymdi að ég væri að fara í helgarferð heim til Rvíkur (er í skóla úti á landi) og ég var að reyna að finna föt í fataskápnum. Það vantaði allar nærbuxur og svo var einhver furðuleg hneppt peysa þarna sem ég kannaðist ekkert við. Mamma (sem ætti þá að hafa verið í Rvík…því ég var úti á landi)kom með einhver föt…þá var ég komin í skrítnu peysuna og var farið að finnast hún flott. Mömmu fannst hún ljót og lét mig hafa hreina peysu. Mamma og pabbi voru þarna bæði að hjálpa mér að undirbúa mig fyrir skólann og ég var stressuð og vildi ekki verða sein. Ég sagði að kennarinn væri strangur og ég yrði skömmuð en mamma sagði að ég þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur, pabbi myndi keyra mig (tek það aftur fram að þau eiga að vera í Rvík, en voru allt í einu þarna með mér úti á landi að undirbúa mig fyrir skólann!!!). Pabbi bað mig að kasta til sín bíllyklunum en hann náði ekki að grípa og lyklarnir duttu í grunnan snjóinn. Endir, held ég