Það er hættulegt af því að það er hægt að festa lifandi manneskjur í einhverjum heimi þar sem þau eiga ekki heima,eða það hef ég heyrt.Svo hef ég líka heyrt um allskonar sögur um krakka sem hafa farið í andaglas að andinn í glasinu hefur beðið manneskju um að gera eitthvað t.d um að vera ein í herbergi,eða beðið manneskju um að kíkja í spegil og í bæði skiptin áttu þessar manneskjur að hafa verið klikkaðar á eftir því.
Það eru víst einhverjar reglur sem maður verður að fara eftir ef maður fer í andaglas t.d aldrei gera neitt sem andinn biður þig um,aldrei biðja andan um að sína sig og eitthvað svoleiðis annars er ég einginn snillingur í þessu,mæli bara með því að þið sleppið þessu,það er alveg rétt að það geta ekki allir ráðið við þetta.
Það muna kannski einhverjir eftir því þegar allt varð brjálað í félagsheimilinu í Vestmannaeyjum,það var kallað á fullt af prestum og einhverjum köllum af því að einhverjir krakkar voru búinir að vera í andaglasi,sumir segja að það hafi allt verið á ferð og flugi þarna inni,alveg eins og í hryllilegri draugamynd.
<BR