Þetta hefur gerst nokkrum sinnum en eitt skipti man ég vel eftir.
Þannig var að ég sat inni í eldhúsi fyrir nokkrum árum og át morgunnverð. Ég sat þannig að ég gat ógreinilega séð stigan sem lá niður. Allt í einu fannst mér ég sjá einhvern ganga upp stigann og hélt ég að þetta væri bróðir minn. Þegar ég reyndi að sjá betur hver þetta var hvarf hann, ég meina púff. Hann var kominn í efstu tröppuna og ógerlegt fyrir hann að hoppa í felur. Mér fannst þetta voða skrýtið, sérstaklega þegar ég mundi eftir því að ég var einn heima.