Mig dreymdi þetta:
Ég var að labba í bænum og þá kemur róni sem biður mig um að sýna sér í hvaða undirfötum ég væri. Ég neita því nottla og held áfram að labba en hann labbar á eftir mér og ætlar aldrei að hætta að ónáða mig…það er líka eins og ég sé að tala við einhverja vinkonu eða einhvern sem labbar við hliðina á mér og við erum mjög uppteknar að tala, en sé ekki hver hún er. Róninn heldur áfram. Allt í einu sé ég að ég held á nýydduðum blýanti og ætla bara að reyna að hræða hann burtu..en ég hitti blýantinn djúpt inn í hjarta hans og hann deyr. ´
Eg og vinkonan stingum af. Daginn eftir kemur einhver lögreglumaður til mín og vill bara svona spjalla vingjarnlega(í draumnum var ég nýbúin að finna mér einhverja íbúð og engin húsgögn komin, allt grátt). Hann situr hliðina á mér og bíður eftir að ég játa…talið berst samt aldrei að dauða manninum og löggan fer út úr húsi. Ég man hvað mig langaði að segja við hann að ég ætlaði bara að hræða rónann burt en hitt óvart í hjartastað…ætlaði ekkert að beita ofbeldi, en ég þorði ekki að minnast á það einu orði.
ENDIR
p.s. hvað þýðir morð????????