Mig dreymdi að ég væri algjör klaufi á gönguskíðum!!!!! ég og 2 konur í bekknum mínum vorum í röð á gönguskíðum, ég var í miðjunni alltaf að missa skíðin af mér, skórinn losnaði,skíðin sneru öfugt…það sem átti að snúa fram, sneri aftur og þegar ég reyndi að festa skíðaskóinn á skíðið, þá fór hann skakkt á svo ég varð brjáluð og stappaði niður með þeim fæti, þá brotnaði undir mér djúpt skafl og skíðið datt langa leið niður. Svo var ég komin inn í einhvern skála, og þar var grátandi nýfætt barn sem sat á háum kopp, barnið var allsbert og var alveg að detta ofan í þennan mjög háa kopp, samt hékk það…eða náði að halda sér þó það væri nýfætt. Ein af konunum í bekknum (þær voru ekki með mér í þessu húsi) kom inn og horfði á mig með fyrirlitningu yfir að vera ekki búin að klæða mig úr útifötunum og taka húfuna af mér.
ENDIR!!!!!!!!!!