Álfakönnun
Í sambandi við álfakönnunina fannst mér vanta valmöguleikann “Í Hafnarfirði” fyrst “Í Kópavogi” var möguleiki. Ég tel að það séu nú miklu fleiri álfar í Hafnarfirði, enda eru sérstakar álfaskoðunarferðir í Hafnarfirði. Eru ekki einhverjir (t.d. Hafnfirðingar) sammála mér?