Það er náttúrulega betra að finna eitthvað útúr þessum draumum ef lýsingin á þeim væri aðeins ýtarlegri! Og já, þetta eru virkilega fucked up draumar, svona eins og þeir sem ég var vanur að fá.
Undirmeðvitundin leikur stundum á mann og í þínu tilviki gerir hún það nokkuð vel þannig að til þess að geta ráðið eitthvað af viti í draumana þarf meira! T.d. eins og hverju þú stalst og þannig smáatriði. Lausnin fellst oft í smáatriðunum.
Eins og hjá mér. Mig dreymdi eitt sinn að ég væri inní einhverju húsi og þar inni voru hinir ýmsu gangar og herbergi. Á jarðhæðinni voru veggirnir hvítir en mikill skuggi féll á þá. Og ég labbaði þar um kom svo að einu sviði þar sem barnakór stóð á stalli að syngja lög fyrir áhorfendur. Ég steig á pallinn og tók þátt í söngnum. Engir áhorfendur. Svo var það allt búið og ég fór fram og kom að einhverjum stiga úr timbri og labbaði þar upp. Þar var timburgólf sem hafði svona litlar glufur á milli timbursins. Fyrir framan mig lá svo lítill krakki með litla slöngu um hálsinn. Krakkinn leit út fyrir að vera dáinn en slangan hélg áfram að kyrkja hann. Og svo í örlítilli fjarlægð frá mér var hópur af litlum slöngum um allt gólf. Ég gekk síðan að veggnum og var þar svona lítill gangvegur meðfram honum og öðru megin var veggur með hurðum á og hinum megin var bara handrið(úr timbri). Ég ætlaði að labba þar inn, en ég man að ég stoppaði hjá einhverri hurð og ætlaði að opna hana. Ég man því miður ekki meir því að ég vaknaði stuttu eftir þetta, og svo er nokkuð langt síðan að mig dreymdi þetta.
Bara svona deila með ykkur skemmtilegum draumi :T