ANDAGLAS VIRKAR !!! ojj ég var búin að vera nokkuð oft í andaglasi með tveimur vinkonum mínum, og við vorum yfirleitt alltaf að spurja bara eitthvað algert rugl, hver er skotinn í hverri og þannig. En svo fórum við að spurja fyrir alvöru og einu sinni, þegar við spurðum hvort það væri vondur eða góður andi í glasinu þá fór glasið á “vondur” og fór svo á 6-6-6, aftur og aftur og við urðum auðvitað skíthræddar, því að eins og þið vitið kannski þá þýðir það skrattinn eða eitthvað þannig, og hinar vinkonur mínar tvær tóku puttann af glasinu og hlupu fram, ég var ein eftir. Þá hélt glasið áfram að fara alltaf 6-6-6-6-6-6 og geðveikt hratt, og ég var auðvitað ekkert smá hrædd en reyndi að ýta bara geðveikt fast til að stoppa glasið. Loksins hægði það á sér svo ég spurði hvort hann (andinn) vildi fara, og þá fór hann á “endir” og fór. Ég veit að ég var alls ekki að hreyfa glasið sjálf og það var geðveikt erfitt að halda glasinu þannig að það þyti ekki niðrá gólf (og andinn slyppi út) , og svo hef ég líka spurt þessar stelpur hvort þær hafi örugglega ekki verið að hreyfa glasið, en það eru um 2 ár síðan þetta gerðist, og þær segjast alls ekki hafa gert það, og ég trúi þeim alveg…
Einnig veit ég um eitt atvik þar sem 4 vinkonur fóru í andaglas en svo hætti ein þeirra við…. þannig að þær voru bara þrjár.
Ég man ekki nákvæmlega hvað gerðist en það kom upp eitthvað ógeðslegt í andaglasinu og innan árs var ein þeirra dáin, önnur fékk krabbamein og sú þriðja var komin á kaf í eiturlyf.. en ekkert gerðist fyrir þessa sem hætti við, fjórðu manneskjuna. Ég hugsa að þetta hafi ekki verið bara tilviljanir að þetta skyldi hafa gerst fyrir þessar konur á einu ári akkúrat svo skömmu eftir að þær fóru í andaglas… eða hvað finnst ykkur?