Þetta sem ég mun skrifa er um skrítna óraunverulega hluti sem GERÐUST

Vinur minn flutti inn í íbúð sem leit út fyrir að vera eðlileg. Fyrstu nóttina
vaknaði hann um nóttina með litla stelpu fyrir framan sig. Honum hrökk við
en hverfur stelpan. Viku síðar vaknar pabbi hans og sér litla stelpu
horfandi á son sinn (vin minn) en hverfur stelpan snögglega. Þegar
hundur kom eitt sinn þangað í heimsókn var öll einbeitning hans beind að
herbergi vinar míns og sérstaklega þar sem stelpan sást. Hann byrjaði að
urra. Hann leit líka inn í eldhús þar sem stelpan sást líka einu sinni. Svo
fluttu þau burt. Freaky Shit. En hreinasta alvara.

Þetta er um sjálfann mig.
Síðan ég var 5 ára hef ég fengið sömu martröð nokkrum sinnum, bara
málið er að hvert skipti sem ég vaknaði gleymdi ég honum eiginlega
samstundis. Þegar ég vakna er eins og ég var að hlaupa 10 km og ég
verð svo hræddur að ég hleyp út og öskra! Þetta hefur gerst við mig 4-6
sinnum allt líf mitt (16 ár). Seinasta skiptið var 1999 í júlí. Sama tíma og
and-kristur fæddist af spádómum Nostradamusar. Eina sem ég man eftir
af draumunum er eitthvað stórt merki hugsanlega djöflamerkið. Ég bara
veit það ekki né man.

Mig hefur dreymt tvisvar að T-1000 (vondi kallin í T2) kæmi í afmæli vinar
míns og málaði húsið rautt. Mig hefur dreymt að Jesús Kristur væri með
mér í eyðimörk að gefa mér vatn að drekka. OG FL. En það eina sem ég
fæ eru martraðir þegar mig dreymir það er.