Ég hef lent í svona dulspekireynslum nokkrum sinnum.. En ég ætla að segja frá þeirri eftirminnilegustu, ég birti kork hérna um hana nýlega en ekkert margir lásu það kannski..
En allaveganna, fyrir 3 árum fékk ég kanínuunga, hún var hraust og allt í lagi með hana, en svo einn dag gat hún ekki gengið eða hoppað, gat einfaldlega bara ekki notað eina afturlöppina. Hún fór þónokkuð oft til dýralæknis en ekkert fannst að henni þótt að hún hafi farið til mismunandi dýralækna og fór í alveg helling af röntgenmyndatökum, en ekkert fannst að. Við gátum ekki horft á greyið dýrið kveljast mikið lengur þannig á lógun virtist því miður eina lausnin, það var búið að gera allt sem hægt var fyrir litla greyið. En svo var það svo undarlegt, að nóttina áður, þá gat ég ekki sofnað og ég tók hana úr búrinu sínu og lá bara uppi í rúmi með hana, svo finn ég eitthvað fyrir aftan mig, ég lít við og sé ungan strák standa í dyragættinni. Hann leit út fyrir að vera um 16-18 ára gamall og var klæddur grænum bol með Peace merki framan og stuttbuxum og strigaskóm með skollitað hár. Hann var að horfa á mig en svo þegar hann sá að ég horfði á hann fór hann að líta í kringum sig, þetta var fyrsta reynsla mín þar sem að ég sá draug svona greinilega þannig að ég varð vitanlega hrædd, ég snéri mér út í horn og fór að gráta. Svo áður en ég vissi af, hafði ég sofnað. Svo vaknaði ég hálftíma seinna og uppgötvaði þá að kanínan var horfin ! Hún var ekki í rúminu og gat vitanlega ekki stokkið niður vegna fótarins. En svo leit ég undir rúm og þar var hún, ég kallaði á hana og hún kom hlaupandi til mín, allt í lagi með löppina.