Á u.þ.b. eins árs fresti dreymir mig alltaf sama drauminn og ég man hann alltaf þegar ég vakna en gleymi honum alltaf um leið og mig dreymdi hann í nótt og eina sem ég man var að ég var ofaní einhverju ræsi (ég var einhver James Bond) og ræsið lá baraundir grasinu og hliðina á því (frá mínum sjónarhóli) var bil á milli grasins og moldarinnar undir því.Seinna sé ég að einhver kemur upp úr moldinni og fer upp í grasið og þegar hann kemur upp hardnar mold utanum hausin á honum og ég sé að þetta er besta vinkoa mín og (það er eins og ég sjái þetta ofanfrá) þá verða loðin dýr allt í kring brjáluð og rífa hana upp og (hún er eins og stytta með skelfingarsvip) og byrja að misþyrma henni og lemja í jörðina svo að ræsið hrynur og ég er föst og get hvorki hreyft legg né lið og síðan man ég ekki meira.
Ég veit ekki hvað þetta táknar og ef einhver veit það plís segið mér og líka að mig dreymir mikið oftar martraðir en aðra jafnaldra mína t.d.dreymdi mig einu sinni eitthvað alveg svaka friðsælt en síðan kom ógeðslegt andlit og þið getið ekki ímyndað ykkur neitt verra það var allt út í örum og augun voru rauð það var alveg hvítt og ohh ég var andvaka í þrjár nætur. Og það er alltaf einhver nákominn mér í þeim.
látið mig vita ef einhver veit hvað það þýðir.