Bíddu, haze fyrst þú ætlar að skíta yfir þetta fólk sem er búið að gera fína hluti með þennann vef þá verðuru að hafa staðreyndirnar á hreinu. Það er ekkert rétt hjá þér að það séu myndir á 2-3 mánaða fresti. Ef þú bara færir á helgin.is í staðinn fyrir að vera með innantómar yfirlýsingar þá myndiru sjá að helgin.is er búin að vera starfrækt síðan nokkru fyrir síðustu áramót og það hafa verið myndir frá öllum helgum og stundum fim, fös og laugardag og það er ekki nema á ca. síðasta tveimur mánuðum sem að myndir hafa verið að detta inn sjaldnar en áður. Ég er ekki að segja að ég sé endilega ánægður með það, auðvitað hefði ég viljað að þeir næðu að halda dampi en mér skillst á fólki sem þekkir þá að þeir hafi lent í einhverjum vandræðum með ljósmyndara en það er víst allt búið að leysast núna.
Menn skulu ekki fara og hengja bakara fyrir smið (fyrir þá sem kannast við máltækið).
Auk þess sem þeir eru eina djammsíðan sem eru að gera einhverja hluti…..(þá flokka ég ekki núlleinn undir djammsíðu, enda er það frábær síða). Helgin.is er eina síðan sem er eftir af öllum þessum síðum sem guð má vita hvað heita sem er að gera eitthvað.