Ef þið viljið verða fucked up fljótt, þá mæli ég með einföldum spilaleik.
Þið sitjið semsagt í hring og ein ykkar fær spilastokkinn (það er spyrjandinn) og stokkar. Svo er dregið efsta spil og manneskja á vinstri hönd (giskarinn)spurð hvaða spil þetta er. Þá er leitast eftir svari frá tvist upp í ás, (ás er hæstur). Ef fyrsta giskið er vitlaust þá er sagt hvort spilið sé hærra eða lægra, og ef það er giskað aftur vitlaust þá þarf að drekka jafn marga sopa og spilið var langt frá rétta spilinu. Svo er næsta manneskja, vinstra megin við seinasta giskara spurð aftur af SAMA spyrjanda.
DÆMI: Spyrjandi dregur 7-u. Hann spyr þá giskarann og giskarinn giskar á gosa. Þá segir spyrjandinn að spilið sé lægra, þá giskar giskarinn á 5-u, og þar sem það er tveimur frá, þarf að taka 2 sopa, ef hann hefði giskað á fjarka, þá væru það 3 sopar, þristur = 4 sopar os.frv.
HINSVEGAR ef giskarinn giskar á rétt spil strax í fyrsta giski, þá þarf spyrjandi að taka 10 sopa, en að giska rétt í 2. giski eru 5 sopar á spyrjandann. Þegar það er búið að giska á rétt spil, þá lætur spyrjandinn mann á vinstri hönd hafa stokkinn og spilið heldur áfram.
Þetta er kannski ekki SKEMMTILEGAST leikur í heimi, en getur verið það samt sem áður, hinsvegar er hann æðislegur ef að fólk er að reyna hella í sig sem fyrst, þar sem að soparnir koma ógeðslega hratt í þessu og menn verða drullu fullir.
bless